Er með ákveðna tóna sönglandi í hausnum á mér aftur og aftur… nei það er ekki do re mí söngurinn eða “the hills are alive…” heldur jóðlið! Ég fór semsagt á Söngvaseið áðan með mömmu & pabba.
Verð að viðurkenna að ég verð alltaf hrifnari og hrifnari af Valgerði sem söng&leikkonu- það er eitthvað við hana sem hrífur mann með. Krakkarnir stóðu sig líka frábærlega og sýningin í heild var mjög flott.
Man að ég fór á þessa sýningu e-n tíma fyrir mörgum árum í Þjóðleikhúsinu með mömmu… og ef ég man rétt þá lék Valgerður Lísu, elstu stelpuna í þeirri uppfærslu.