Ég fór á föstudaginn síðasta og keypti mér nýjan scanner.. okey.. ég kem heim, set hann í samband og svona en nei haldiði ekki að það se eitthvað fáránlegt í gangi því að hann scannar ekkert inn myndirnar og það er barasta allt svart á skjánum í þessu svokallaða “preview” dóti… svo ef mar gerði preview aftur þá kom örlítil rönd og alltaf svona í hvert sinn… glætan að ég ætli að sætta mig við það sko… ég fór því með hann inn í EXPERT í gær og er búin að vera að bíða eftir því að þeir hringi til baka en þeir hafa ekkert hringt í allan dag þannig að ég tók mig til og hringdi í þá… nienie þá liggur scanninn bara enn á gólfinu óhreyfður.. what!!! ég er búin að vera á bið núna í 15 mín ekki alveg að sætta mig við svona lagað…
ég heimta bara nýjan scanna ef þeir finna ekkert að honum, ég sé ekki alveg hvað ég get hafa gert… mins var meiraðsegja svo sniðug að senda með honum cd með 3 myndum í mismunandi stigum preview til að sýna þeim fram á hvernig allt leit út hjá mér:P