jæja… lítið haft að segja í dag…
Ég er enn að jafna mig eftir rúntinn minn áðan…
Málið er að ég fór áðan út í bakarí og svona til að kaupa bakkelsi fyrir fundinn sem var hérna… svo var ég bara að keyra í rólegheitunum út Öldugrandann kemur ekki einhver fáviti út frá Eiðisgrandablokkunum og bara beint í veg fyrir mig.. sem betur fer náði ég að stoppa en allt fór á flugferð um bílinn hjá mér… NOT very fun.. ég slapp allavegna við skell sem ég er mjög sátt við en adrenalínið er alveg á trilljón enþá.
-NB ég þoli ekki gamla kalla á stórum jeppum!!!