síðasti dagurinn þar sem ég telst vera tuttuguogeitthvað ára gömul 😛
Ég veit ekki til þess að ég sé með einhverja aldurskomplexa, hlusta reyndar heilmikið á aðra röfla yfir því að vera ekki búin/nn að gera hitt eða þetta sem þau ætluðu sér að gera fyrir þrítugt. Ég er kannski ekki alveg búin að gera það sem ég hefði viljað vera búin með en á móti er ég hamingjusöm og á alveg fínasta fína stað í lífinu. Á yndislegan kærasta, æðislegan son og annað kríli á leiðinni 🙂