Við familían skelltum okkur í sumarbústað í Munaðarnesi yfir mánaðarmótin síðustu (26.júní – 3.júlí). Ferlega notalegur tími sem var eytt í pottinum (erum að tala um amk 2x á dag hjá okkur mæðginunum), á róló og á göngu um nágrennið. Mamma og pabbi komu svo til okkar á mánud.síðdegi og voru hjá okkur fram á fimmtudag. Ekkert lítið sem strákurinn var kátur að hafa fleira fólk sem hann vissi að hann gæti snúið um litla fingur eins og ekkert væri. Dró þau reglulega niður á róló og að leita að vegheflinum! Jökull & Inga stoppuðu líka í mat á leiðinni í Borgina frá Húsavík 🙂