miðað við hvað er á dagskránni fram að áætluðum mætingartíma krílisins þá finnst mér ferlega langt eftir eitthvað en um leið og ég lít á dagatalið átta ég mig á því að það er alls ekki svo langt í litla krílið okkar. Miðað við áætlaðan fæðingardag eru einungis 7 vikur eftir :mute: eða í mestalagi 9 vikur!
Ennnnnnnnn ef ég tek upp á því að hlusta á líkamann minn þá er allt of langt eftir þótt það séu bara 7 vikur eftir 😛 ég er nefnilega farin að finna dálítið vel fyrir þessu aukna álagi á líkaman :hmm:
Verðlaunin fyrir þetta eru samt svo frábær að ég vil ekki væla 😛 ég hlakka svo endalaust til að fá litla krílið okkar í hendurnar og að sjá hvernig Oliver bregst við litla bróður/litlu systur.