alveg er það greinilegt að sumarið er komið… ég má varla fara út úr húsi í stutterma bol eða í sund og þá fæ ég að kenna á því með tilheyrandi kláða :hmm: ekki spennandi! og ég virðist ekki meiga taka inn neitt af ofnæmislyfjunum mínum.. bara spreða mildison á svæðið í smá tíma og taka svo pásur *dæs* þetta lagast á endanum 🙂
Við familían skelltum okkur í sund í gærmorgun upp í Mosó og það var alveg greinilegt að það er eiginlega of langt að láta heilar 2 vikur líða á milli sundferða. Þvílíkt sem pjakkurinn var ánægður með að komast í vatnið og HOPPA útí. Verður spennnandi að sjá hvernig hann verður í pottunum í sumarbústaðarferðum sumarsins 🙂
Ég setti inn nýja bumbu mynd í safnið á Flickr ef einhverjir hafa áhuga, hún er að vísu alveg vikugömul 😉