jæja, það er búið að vera brjál. að gera hjá mér ídag… sérstaklega eftir hádegið og þessir tímar eru búnir að líða mjög hratt..
Ég fór í hádeginu í dag í búðina sem pabbi keypti digital myndavélina sína í fyrra til að kaupa auka rafhlöðu þar sem þau skötuhjú eru að stinga mig af á morgun, þau eru að fara til Sverge í nokkra daga.. og vilja vera örugg með að hafa nægt rafmagn á myndavélinni til að taka alveg skrilljón myndir… enda á kallinn 2x 128mb kort og hvort um sig getur tekið um 500 myndir í fínum gæðum. og svo var það eitt sem flygdi með vélinni… man ekki alveg hve stórt það var en amk mun minna en hin 2 🙂
allt helv. hádegið mitt fór í þetta bara út af EINUM karl asna… nei ok.. hann er enginn asni en málið er bara svo einfallt að þegar mar er að flýta sér þá er alltaf einhver sem er á undan manni sem er svo rólegur eða þá svo mikill hálfviti 🙂
allavegana þá var nóg af verkefnum sem biðu mín þegar ég kom til baka… eitthvað bögg í gangi….