Við ritararnir skelltum okkur saman í hádegismat aldrei þessu vant. Ákváðum að skella okkur á Santa María í hádeginu – mér finnst þetta alveg frábær staður 🙂 flott stemning og svo skemmir það auðvitað ekki að þeir eru kreppuvænir 😉
Fyndið samt hvað ég finn strax að magamálið er farið að minnka eitlítið – gat ekki einusinni klárað matinn minn og sit hérna núna í vinnunni og er við það að springa 😀
Já mér finnst þetta líka frábær staður, eitthvað svo ekta og heimilislegur fyrir utan hvað það er alltaf gaman að fá góðan mat á vægu verði. Til hamingju annars með væntanlegt systkini Olivers 🙂