Við æskuvinkonurnar ásamt Leifi, Ómari og krökkunum hittumst í mat í gær. Ákváðum að prufa að vera dálítið þjóðlegar og hafa einhvern smotterís þorramat og svo hitt og þetta fyrir gikkina 😉
Áttum bara skemmtilegt kvöld og komumst að því að “fersk” sviðasulta fer einna helst ofan í liðið af þessu mataræði… já og blóðmör.
Ákváðum að smella fréttunum okkar á stelpurnar þarna og náðum að gera það nokkuð laumulega og sumir misstu andlitið sem var BARA fyndið :blush: