Ég má til með að hrósa fyrirtækinu Heilsa ehf.
Við lentum í því í vikunni að þegar við ætluðum að gefa Oliver jógúrt (Soya) að þá var dollan fallega græn að innan af myglu *jummy* samt sást ekkert utan á dósinni áður en hún var opnuð og síðasti söludagur átti að vera í maí! Ég hafði samband við innflytjendurna (Heilsa ehf) og lét þá vita af þessu þar sem þetta telst auðvitað seint vera eðlilegt. Í gær kom ung kona til okkar í H14 ,með sendingu, kassa fullan af nýju jógúrti(og smotterí til viðbótar) handa pjakknum.
Mér þykja þetta MJÖG góð vinnubrögð hjá þeim enda ekki alveg eðlilegt að fá svona vöru í hendurnar.