og það frekar hratt þessa dagana amk að mínu mati. Finnst hann bókstaflega fljúga framhjá… áður en maður veit verður árið liðið.
Strákurinn kláraði viku 2 á leikskólanum í gær og er bara sáttur við veruna þar, hann er farinn að kalla á krakkana á morgnana og heimtar svo að fara til afa seinnipartinn. Bara kátur lítill gaur 🙂
Í gær var svokallaður vasaljósadagur á leikskólanum þar sem allir krakkarnir áttu að mæta með vasaljós og var svaka partý haldið fyrir krakkana í salnum. Eins og sjá má er Oliver alveg tilbúinn til að dansa við stelpurnar 😉