Ég er búin að vera að finna fyrir kulda undanfarið, alveg sama hvernig staðan er í herbergishitastiginu alltaf skal mér vera kalt – nema reyndar á jólahlaðborðinu á laugardaginn þá var mér víst allt annað en kalt enda voru 40+ einstaklingar staddir í pínu litlu herbergi með engri loftræstingu!!! það var bara eins og að ganga á vegg svo heitt og rakt og ógeðslegt var loftið…
Annars þá er þetta nú auðvitað alveg tíminn til að vera kalt 😉 snjór, dimmt úti og kalt (svona yfirleitt amk). Þá er svo auðvelt að kúra sig undir teppi/sæng upp í sófa og horfa á sjónvarpið eða lesa 🙂