ég var að taka eitthvað test í blaðinu BIRTA sem kom með fréttablaðinu í morgun…
Hvernig gæludýr ert þú….
30-45 stig ( ég fékk 44 )
Hundur
Þú ert sú sem allir treysta, þagmælskur & traustur vinur sem hikar ekki að grípa til háværramótmæla og jafnvel ofbeldis ef þér finnst brotið á þér og þínum nánustu <-- glætan ég er ekki ofbeldisfull manneskja...
Þú ert ekki mikil félagsvera en átt auðvelt með að bregða undir þig betri fætinum í góðra vina hópi með fólki sem þú treystir fullkomlega. Þá áttu til að skvetta svolítið í þig <-- já einmitt.. ég er svoddan svampur og ferð stundum á nettan bömmer daginn eftir. Þú gerir hins vegar aldrei neitt sem hefur alvarlegar afleiðingar <-- aldrei að segja aldrei og hliðarspor eru ekki inn í myndinni.