ég var í svo mikilli þversögn við sjálfa mig í gær að mér finnst það barasta nákvæmlega ekkert fyndið!
Mér hefur alltaf fundist asnalegt að byrja jólin í október (þá meina ég allt jóladótið út um allt allstaðar í búðum). Sjálf byrja ég ekki að skreyta og svona fyrr en í fyrsta lagi 1sta í aðventu, þ.e. ef aðventan byrjar í nóv. annars er það bara 1 des 🙂
Í gær eyddi ég lengri tíma í vinnunni í að skoða jólamyndir! allskonar jólajólajóla blöh, var svo innilega ekki að nenna þessu enda hafði ég enga löngun í að vera að skoða þetta. Það er víst búið að ákveða hvenær jólahlaðborðið á að vera og ég sett í að búa til auglýsingu *blöh*
Ætla mér samt að fara á bæði jólahlaðborðin 🙂