Við fórum í Hólminn síðasta sunnudag með hluta af fjölskyldu Leifs. Það er svona viss hefð í fjölskyldunni að fara vestur með ömmu hans á hverju sumri að leiði afa hans einhverstaðar í kringum afmælisdaginn hans. Í ár var það semsagt um síðustu helgi.
Fengum yndislegt veður og áttum notalegan dag í Hólminum, náðum líka nokkrum flottum myndum 😉 alltaf til í flottar myndir 🙂 er búin að henda þeim inn á Flickr
Annars er vikan bara búin að líða.. og það frekar hratt. Alltaf sama rútínan hjá okkur vinna sofa leika borða og svo frv 🙂
fer vonandi að verða virkari hérna á næstunni samt…