Við fórum með Oliver í fyrstu útileguna hans núna um helgina!
Fengum alveg snilldar veður í Húsafelli og nutum þess að vera úti í náttúrunni með stubbnum okkar. Hann fílaði útiveruna svo vel að þegar kom að því að taka niður tjaldið í dag þá fór minn bara að háskæla og bar hælana aftur að tjaldinu og reyndi að stinga þeim niður og festa tjaldið aftur *híhí* bara sætastur!!!
Semsagt brilliant útilega að baki og við litla familían mættum öll útitekin (eða missólbrennd eftir því hvernig á það er litið…) og sæt í 1 árs afmælið hennar Sóleyjar Svönu núna síðdegis í dag 🙂
btw sumir liggja í bælinu með sólsting *obbobobbb* enda heyrðist í fréttunum að það hefði mælst 22°c hiti þarna 🙂
Myndir munu birtast í náinni framtíð….