Fyndið hvernig maður sér ísland stundum í öðru ljósi þegar maður er búinn að vera að draga útlendinga út um allt. Margir staðir sem maður fer m.a. ekkert á nema að með í för sé einhver útlendingur sem hefur etv ekki komið á skerið.
Ég fann þónokkuð fyrir þessu á meðan frænka var hérna. Náðum líka að gera ótrúlega margt með henni 🙂 vona bara að henni hafi þótt það skemmtilegt eins og okkur.
Við fórum t.d. með henni í Árbæjarsafn um daginn… Ég hef ekki farið þangað síðan í barnaskóla!!! ekki það að mikið hafi breyst heldur er þetta samt bara svo skemmtilegt!