Ég var að átta mig á því að í sumar er búið að plana 2 hittinga stórfjölskyldunar minnar mömmu megin 🙂 sá fyrri er á morgun og þá ætla afkomendur Helgu ömmu og Olivers afa að hittast í tilefni þess að afi hefði orðið 95 ára núna 10.júní. Stuttur fyrirvari þarna þannig að það er svona ýmis mæting á liðinu en mér sýnist þó að flestir ætli að koma 🙂 *jeij* fyrir því!
í júlí ætla svo börn systkina Olivers afa að hittast (get ekki beint sagt afkomendur neinna ákveðinna þar sem afi átti smá bland í poka í systkinahópnum sínum – hah svo segja þeir að nútíminn sé slæmur!) það verður spennandi að sjá hvernig rætist úr því 😉