Ég á það stundum til að ofhugsa suma hluti eins og flestir geri ég ráð fyrir – amk margir.
Stundum truflar þetta mig og stundum ekki, fer sennilegast eftir því hvað ofhugsunin snýst um. Þessadagana er það grein sem mig langar pínu (ok heilan helling) að skrifa en einhvernvegin legg ekki í það… ekki það að ég myndi sennilegast bara birta hana hérna 😉 og þ.a.l. myndi hún sennilegast ekki koma fram fyrir neinn sem ekki veit nú þegar hversvegna þessar pælingar eru í gangi í skrítna hausnum mínum.
hugsa að ég bræði þetta aðeins lengur – og þá etv bara úr hausnum mínum? oh well ég hef alla næstu viku til þess að gera kollinn starfhæfan á ný þar sem ég er í “sumarfríi” í næstu viku 🙂 ætla að ath með að túristast aðeins og gera eitthvað skemmtilegt með frænkunni 🙂