Næstu daga á ég víst að skrifa helst bara niður það sem mér liggur á hjarta… eða sko eiginlega meira ég bara á að þegja og hlýða því. Skýr fyrirmæli frá doxa>
Síðustu tæpa vikuna hefur fólk komið með nokkrar annsi skemmtilegar lýsingar á röddinni minni… samt eiginlega flestar í dag…
hef fengið að heyra…
…að ég hljómi eins og 14 ára strákur í mútum…
…að ég hljómi eins og ég sé að fara að gráta
…að ég hljómi eins og ég sé að tala á “háa C-inu”
…að það sé eins og ég sé að þykjast vera hás.
hmmm doxinn minn hinsvegar sagði við mig í morgun að þetta væri bara vírus 😛 það sé ekkert óeðlilegt að heyra við lungnahlustun, hálsinn sé “fínn” og það eina sem ég geti í rauninni gert sé að bara hreinlega halda kj!