… smá auka orku til þess að gefa mér?
Ég er alveg búin á því þessa dagana, liggur við að ég sofni með Oliver kl 8 öll kvöld og ef það gerist ekki þá er ég ekki skemmtilegasti félagsskapurinn *hóst* úrill og leiðinleg m.ö.o.
Mér líður eins og fyrstu mánuðina þegar ég gekk með Oliver en ég veit það þó að það á ekki við núna. Mikið svakalega er þetta samt óþægileg tilfinning þegar maður hefur ekki almennilega og vel skiljanlega ástæðu… hafði amk ástæðu þetta haust 😉
Ekki það að ég hef sennilegast ágætis ástæðu núna – Oliver er að vakna svona einusinni yfir nóttina sem þýðir að svefninn slitnar hjá mér/okkur og er svo glaðvaknaður og sprækur upp úr 6;30 ekki alveg tíminn sem manni langar að vakna á EN þetta kemur á endanum….