Hafðist í 3ju tilraun að fá einhver svör… ótrúlegt að maður þurfi að vera dónalegur til þess að fá svör 🙁 mér finnst það allt annað en skemmtilegt 🙁
29.02.2008
Ég hef ekki enn fengið nein viðbrögð við þessum tölvupósti sem ég sendi ritstjórum blaðsins fyrir viku síðan, þannig að ég sendi þeim ítrekun áðan – spurningin er svo hvað næst?
22.02.2008:
alveg hvað ég á að gera…
Var að skoða eitt af blöðum dagsins og tók þar eftir því að þar var birt mynd sem ég tók fyrir þónokkru síðan og birti á annarri af opnu síðunum sem eru hérna á kjánaprik.is, aðeins búið að klippa hana til en ég sé það mjög greinilega að þetta er myndin mín…
Hver er minn réttur? Á ég að þurfa að fara að merkja allar myndir sem ég set inn á bloggsvæðin mín (í crappy gæðum – hah já ég birti nákvæmlega ekkert hérna í almennilegum gæðum). Mér finnst það eiginlega ekki réttlátt samt, kostar auka vinnu að fara að merkja allar myndirnar en ef þetta á að fara að gerast oftar að þá verð ég víst að gera það.
Þetta er nefnilega ekki í fyrsta skiptið sem ég lendi í þessu… síðast var þetta mynd sem var tekin af myndasíðunni minni (sem er biluð þessa dagana) og birt í blaði tengdu Gay-pride. Ég var nú ekki par-sátt með það heldur en á hinn bóginn þá var það blað ekki til sölu og fyrir mitt leiti hefði þá verið alveg nóg að þeir hefðu samband við mig til þess að fá heimild til þess að nota myndina – sem ég hefði veitt góðfúslega þar sem þessi mynd var eiginlega bara fyndin og sýndi svolítið vel stemninguna eftir að skrúðgöngunni og skemmtiatriðunum niðrí bæ lauk. Það eitt að leita eftir leyfi til myndbirtingar á einkamyndum í prentmiðli er bara lágmarks kurteisi.
Og hvaða svör fékkstu ??
það er verið að vinna í þessu en mér finnst þetta ferlega leiðinlegt og skítt að maður þurfi að vera með stæla og leiðindi til þess að fá einhver viðbrögð 🙁