Við litla familían skelltum okkur í sumarbústað yfir nótt með Magga, Elsu, Óla og Sigga. Bústaðurinn var á Strandavelli rétt fyrir utan Hellu. Ferlega fínn bústaður í eigu vinnunar hans Magga.
Við notuðum tímann í spjall, spil, sumir fóru í pottinn (sem ætlaði aldrei að hitna), leika við Olla og hafa það notalegt 🙂
Takk fyrir helgina 🙂
Ég set myndirnar sem við tókum inn á netið við tækifæri… myndasíðan er e-ð klikk akkúrat núna.
Takk fyrir komuna, það var gaman að eyða helginni með ykkur þremur