Ég átti ágætis spjall við konu sem starfar upp á LSH í morgun, hún hjálpaði mér að sjá það út að ég get með sanni sagt “konur eru konum verstar” og þurfa ekkert að hugsa neitt frekar út í það.
Það er alveg staðreynd að ótrúlega margir virðast geta sent frá sér setningar sem eru með öllu óviðeigandi… í sumum tilfellum er hægt að leiða það hjá sér en alls ekki öllum, eiginlega dáldið langt frá því.
KLUKK
Og já, konur geta verið algjörir hálfvitar þegar það kemur að samskiptum við aðrar konur! *knús* til þín!
Þetta er rétt að miklu leiti en hástemmdar pælingar hjá þér frænka, það er eitthvað undirliggjandi. Kannski fáum við það seinna
æj Setta mín, ég fékk bara að heyra nokkuð um daginn sem stuðaði mig all svakalega og átti hálft í hvoru þátt í því að veggurinn minn hrundi í vikunni og ég kaus að þiggja smá hjálp frá fagaðilum upp á LSH, ég vil ekki fara neitt mikið nánar út í þetta hér en stundum er bara betra að fá að brotna – ég veit bara það að ef að pabbi hefði heyrt það sama og við mútter gerðum þá hefði heyrst í kallinum 😉
Þetta er allt að lagast og ég er bara að vinna í sjálfri mér – þarf að læra að láta sem ég heyri ekki óþarfa komment frá öðrum mæðrum sem ekki vita mína sögu sl mánuð – eins og þið systur eruð báðar búnar að nefna að þá vissuð þið ekki hvað gekk á þannig að ég get með engu móti ætlast til þess að þeir sem eru í minna sambandi við mig/okkur viti hvað hafi gengið á og ég hefði aldrei átt að “hlusta” á þessa athugasemd sem ég fékk að heyra. þannig er það nú bara 😉
Ásdís; ó boj er kominn nýr klukk leikur?
Æji fólk getur verið svo vitlaust, maður á ekki að hlusta á svona, knúúúús 🙂