ég byrjaði á mynd í gær sem mig langar að gera fyrir litla krílið mitt, verst að hún er ekki eins eftir því hvort krílið mitt sé strákur eða stelpa 🙂 skiptir ekki öllu máli samt 🙂 byrjaði á stelpumyndinni – veit svosem alveg hvert hún fer ef ég eignast lítinn gaur 🙂 geri bara strákamyndina næst þannig að ég eigi báðar tilbúnar fyrir mig.. vill til að þetta eru einfaldar myndir en mér þykja þær rosalega fallegar.
þökk sé stelpunum í netsaumónum á ég þær á tölvutæku enda eru þær algerir snillingar að finna munstur ef þær eiga þau ekki til nú þegar 🙂
Það er frekar gaman að sauma þessa mynd enda er ég komin ágætlega langt með myndina þó ég hafi bara byrjað í gærkvöldi 🙂
Nú ef þetta er gaur ( þín orð hehe) þá getur þú bara geymt stelpumyndina þar til næsta kemur 🙂
já eða gefið stelpunni sem ég veit að er á leiðinni 😉 ætla hvorteð er að gefa henni mynd þar sem stóri bróðir fékk mynd 😉