ég var að átta mig á því að skv “planinu” eru akkúrat 14 stuttar vikur í að litla krílið okkar eigi að fæðast (nema það taki annaðhvort takta úr föðurættinni og mæti 2v fyrir tímann eða mína takta og mæti 2v seinna 😉 ). Mér finnst þetta allt eitthvað svo óraunverulegt – þó svo að það sé farið að bera á allskonar hlutum heima sem segja það svart á hvítu að það sé að fjölga í familíunni, pínuponsulítil föt, barnavagn, skiptiborð/kommóða og sitthvað fleira… mér finnst þetta samt enþá vera eitthvað svo óraunverulegt…
ætli maður átti sig ekki best á þessu þegar krílið kemur heim á Framnesveginn með okkur?