breytingarnar mínar sjást loksins!!!
Hvað er það annars með fólk sem getur ekki verið með lappirnar í friði í bíó ?? ég bara spyr… mér finnst ekkert meira ergjandi en þegar einhver grasasninn er alla helv. myndina með bífurnar í bakinu… og hlær svo bara þegar hann er beðinn um að hætta að sparka í bakið á manni… þetta getur algerlega eyðilagt mynd fyrirmanni…
það sem mér finnst mest skrítið er að fólki tekst þetta í ÖLLUM kvikmyndahúsum og sölum…. alveg sama hvernig sætin eru eða hvað er langt á milli þeirra OK ég hef ekki farið í nýja lookið hjá Regnboganum og ekki í VIP í álfabakka EN þetta er bara pirrandi