Þó svo að í dag sé 3fallt stórafmæli hjá fólkinu mínu þá langar mig að óska henni Iðunni minni sérstaklega til hamingju með daginn 🙂
Þó að við séum ekki búnar að þekkjast það lengi þá er dáldið fyndið hvernig við höfum smollið saman oft á tíðum… enda eins og oft hefur verið sagt hálfgerðar sálusystur þó báðar séum við einkabörn foreldra okkar 😀 munar helling að geta tjáð sig við þann einstakling sem oftar en ekki veit hvað flýgur í gegnum kollinn manns þegar athugasemdir koma í sambandi við einkabarnastatusinn 😉
Til hamingju með daginn elsku vinkona, vonandi áttu yndislegan dag framundan og ég hlakka til að kíkja á þig á eftir 🙂
Auðvitað má ekki heldur gleyma Önnu frænku, Snæ litla frænda og Hrönn frænku enda eiga þau öll afmæli í dag líka 🙂
Til hamingju með daginn öll 😉
æj takk fyrir það sæta mín 🙂 hlakka til að sjá þig í dag