Lögreglan í Kópavogi hefur tekið til rannsóknar tildrög þess að átök brutust út í kjölfar deilna fólks um bifreiðastæði við Bónusverslunina við Smáratorg í Kópavogi á miðvikudag. Þar deildu konur um það hver ætti tilkall til ákveðins bifreiðastæðis og lauk því með handalögmálum og aðkomu lögreglumanna. Hlutust af þessu einhverjir áverkar, sem voru þó ekki alvarlegir samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Kópavogi.
2 thoughts on “er ekki allt í lagi með fólk ????”
Comments are closed.
kvennfólk 😉
Hún átti bara ekki að taka stæðið hennar !! 🙂