jæja… ætli það sé ekki kominn tími á að hætta þessu… ég er búin að vera að vesenast í tölvunni í mest allt kvöld… var að fikta í myndum og svona… það er reyndar bara gaman amk að mínu mati!!! 🙂
Í fyrramálið fer ég til Ólafsvíkur í jólabrúðkaup 🙂 Olli frændi & Anna Guðný eru að fara að giftast… svaka stuð á þeim bæ. Þau báðu pabba að taka myndir þannig að við þurfum að vera tímanlega á ferðinni. Þetta ætti samt að vera gaman, öll fjölskyldan eða því sem næst.. langt síðan það hefur gerst… alveg ár! heheh
Reyndar þá var jólaboð í gangi í dag fyrir vestan… skv. hefðinni… við ákváðum að sleppa því þar sem takmarkað pláss er á svefnplássi þessa daga.. & fara bara á morgun.
jæja… ég ætla að fara að sofa því að við þurfum að vakna um 8 sérstaklega ég… þar sem ég ætla í sturtu áður en við förum af stað 🙂
góða nótt & allt það!!