jújú ég fékk gest í gærkveldi einhverntíma.. ekki alveg með það á hreinu hvenær þar sem ég, sjálfur gestgjafinn, var sofnuð um 9 leitið :-$
Þessi gestur lét það ekkert á sig fá og er búin að vera hérna síðan í gærkveldi og kjaftar á henni hver tuska, eða ætti ég kannski að segja hver vængur?
jebb hérna á sveimi er geitungsræfill.. við erum með díl í gangi – ég læt þig í friði og þú lætur mig í friði. Virkar fínt, amk enþá.. ég er hinsvegar orðin pínu þreytt á þessu eintali hennar… *ssssssuuuuuuuuðððððððððð*
Prófaðu að gefa henni einhver sætindi á disk (sultu) eins og góðum gestgjafa sæmir og læðast svo að henni með glas að vopni (ekki eins og góðum gestgjafa sæmir !). Baráttukveðjur
æj hún mátti nú alveg vera hérna greyjið enda á hún ekki langt eftir…
búið sem við fundum um daginn í rifsinu er dautt – eða amk ekkert líf í kringum það.
geitungar og býflugur trufla mig í sjálfu sér ekki neitt, ekki fyrr en þær taka upp á því að bregða mér með því að fljúga upp við eyrað á mér eða fyrir framan andlitið á mér.