þessi vika er búin að vera ferlega fljót að líða, við skötuhjúin erum búin að vera að nota tímann í ýmislegt… hitta eitthvað af ættingjunum (tókum auðvitað ættina hans með trompi á laugardaginn með því að hitta nærri því alla í útskriftarveislunni 😉 ) og sömuleiðis eitthvað af vinunum.. auðvitað ekki tími fyrir alla því miður. Það reddast með tímanum 😀
Svo byrjaði ég auðvitað að vinna í gær og verð sennilegast þennan mánuðinn 8 til 4 og svo breytist það eitthvað í júlí held ég, þessar kerlur eru ekkert að flýta sér að plana sumarið 😉 Leifur flutti svo upp á fjöll í dag, hálf skrítin tilhugsun að hann verði í burtu svona lengi í einu.. en á móti kemur að íbúðarsjóðurinn verður bara feitari eftir sumarið 😀
Annars þá er ég búin að vera að melta veturinn svolítið.. ýmislegt sem ég náði að “finna í sjálfri mér” á þessum tíma og líka kannski sjá hvað ég á og á ekki, í ýmsum merkingum 😉
Við Leifur náðum auðvitað að kynnast mun betur á þessum tíma heldur en við hefðum ef til vill gert ef við hefðum bara haldið áfram að vera hérna heima á klakanum.. enda höfðum við bara hvort annað til þess að leita til ef það var eitthvað… þó svo að allir hinir hafi bara verið símtal í burtu þá á vissan hátt er það ekki það sama 😉
Mér finnst alveg ferlega skrítið að vega og meta fólkið í kringum mig svona ósjálfrátt.. í sumum tilfellum þá virðist fólk alltaf vera jafn traust sama hversu mikið samband er til staðar en aðrir virðast einfaldlega hverfa.. bara *púff* horfið, það á auðvitað eftir að koma í ljós betur eftir því sem tíminn líður sem við erum hérna en mér finnst þetta samt alltaf jafn merkilegt. Aðrir breytast ótrúlega mikið í fjarlægðinni, kannski hægt að segja að þeir sýni sitt rétt andlit? veit ekki með það… bara dáldið fyndið að sjá hvernig fólk lætur. T.d. er ein manneskja sem ég er búin að þekkja LENNNNNNNGIIIII búin að sýna mér það í vetur hvernig hún er í raun og veru, ég er alls ekki sár… löngu svosem búin að stimpla hana með ákveðnum stimpli EN bara merkilegt hversu augljóst þetta varð á meðan maður er ekki á landinu 😀
En mér finnst það alveg yndislegt að sjá hversu margir komu að heimsækja okkur í þennan stutta tíma sem við vorum úti.. t.d. í október var tímabil þar sem sófinn var laus í örfáa daga á milli gesta.. rétt nægur tími til þess að þvo sængurverin 😉 Mér þykir alveg ofsalega vænt um allar heimsóknirnar 😀