ég er búin að komast að því að þessi raðhnerraköst eru ættgeng!!! jibbý I’m not a freak!!! það var sko smá familygettúgether áðan, óbeint verið að fagna bæði heimkomu Hafrúnar frænku eftir 11 mánaða dvöl í Costa Rica & svo átti hún líka afmæli í gær alveg heil 19 ár!! svo þurfti hún endilega að koma með það að á næsta ári þá verður hún 20, ég 25 og Fannar bróðir hennar & gervibróðir minn 30 ára úff… merkikertis ár!!! en þetta ár er eiginlega flottast í afmælum því að afi minn á afmæli núna í júní og verður 90 ára.