ég hefði kannski átt að fara bara heim… það er enn farið að bora… þetta er alger martröð…
Annars þá virðist allt ætla bara að rúlla áfram…
Þorgeir kom með köku handa okkur í dag… namminamm… það er sko óskráð regla hérna að þegar einhver á afmæli sem vinnur hér er skylda að koma með köku eða eitthvað nammigott… og líka ef einhver fer til útlanda þá á að koma með súkkulaði!!! enda eru það bara súkkulaði fíklar sem vinna hérna… vildi samt óska þess heitt og innilega að ég hefði meltingu á við þau… það sést sko ekki á NEINUM nema mér… og það er ekki ég sem er sælkerinn hér á bæ. eða jú jú eg er svosem soldill sælkeri en þau eru ALGERIR sælkerar