ég fór í heimsókn til barnanna minna í gær.. hehe 3 krakkar sem ég hef passað frá því að ég var 12-14 ára þ.e. elsti krakkinn var þá 2 eða svo… annars þá er þessi fjölsk. búin að vera viðloðandi mína fjölsk síðan strákurinn fæddist… en hann er fermingarbarn í vor… úff tíminn líður… mamma var svona varamamman hans… og þar af leiðandi átti ég 2 svona platbræður yfir 2 ára tímabil… semsagt Fannar frændi & Addi enda bjó Fannar frændi hjá okkur á meðan hann var í skólanum og Addi kom til okkar semma morguns og fór aftur milli 4 og 5 á daginn… alveg 3 barna heimili sko…
Allavegana hann Addi er búinn að eignast 2 systur síðan þá… þær Brynju & Unni Birnu sem er litla rúsínubollan mín 🙂
Addi paddi var á sinni fyrstu gaggó árshátíð í gærkveldi.. svaka töffari í jakkafötum og læti.. með herrailmvatn og allt ( OKEY ég veit ég gaf honum það ) Brynja í öfundskasti yfir því að vera ekki orðin nógu gömul til að vera í Hagaskóla ( hey hún fer þangað næsta vetur ) og Unnsa punsan mín var að monta sig af nýja fína PonyHestinum sínum… með GLIMMER hár! svaka stuð hjá okkur í gær… hárgreiðslu tími og svona… var alveg svakalega sæt með 3 teyjur í stutta hárinu mínu og svona… lol ég verð að fara að drífa í því að finna myndirnar mínar af þessum sætulíusum og setja í albúmið mitt…