ahhhhhhhhh *geysp* svona frí geta verið hálf skemmandi…
ég er búin að vera drullu þreytt í allan dag… fór að vísu í smá bíltúr… ekkert merkilegt samt.
Er að öllum líkindum að fara á LOTR TTT á eftir… en ekki fyrr en kl 00:30 á tvo miða pantaða í Laugarásbíó.. ég er bara að melta það…
ég sendi brúðhjónunum nokkar myndir í gærkveldi í tölvupósti og þau voru alveg að tapa sér af hrifningu… sérstaklega ein myndin af þeim sem er alveg súper góð… þar standa þau hjónakornin og eru að skera í kökuna sína… voða sætt.
annars þá eru önnur brúðhjón í dag! búa að vísu í Texas en ég hefði ekki haft neitt á móti því að mæta í það brúðkaup líka… ég kíki kannski bara á þau í sumar ef ég vinn í lottó!!! þá verður líka mætt á svæðið lítil skvísa eða gaur… hlakkar ekkert smá til í myndasýningar! fæ vonandi sendar myndir af brúðkaupinu líka… þó þau hafi ákveðið að fara bara til dómara. ég fæ samt pottþétt myndir af litla englinum…. 🙂