*dæs*
ég er búin að smita Leif, ekkert skrítið svosem… eiginlega bara dæmigert! vona bara að hann eigi eftir að ná sér hraðar en ég er að gera… of mikið sem hann þarf að vera að gera næstu vikurnar. verkefnaskil og annað þvíumlíkt. Mér gengur ferlega hægt að ná þessu úr mér.. ég er ekki alveg að gúddera það, nenni ekki þessu innihangsi endalaust! langar að komast út í vorið! langar að sjá náttúruna lifna við, ekki bara í gegnum glerið!
Haldiði ekki að dekurrófan hafi verið að fá póstkort! jújú Garðar frændi stóð við sitt og Castró er búinn að lesa og samþykkja hans skrif þannig að loksins, aðeins mánuði síðar 😉 dettur kortið inn um bréfalúguna hérna í Vejledal 🙂 takk elsku besti frændi 😀