ofsalega hefur þessi dagur liðið eitthvað hratt og undarlega… en samt er það nú bara frábært… því að það er bara klst eftir af vinnudeginum mínum!!!! jibbý!!!
Ég passaði mig sko algerlega á því að vera ekki í mynd þarna áðan… vona allavegana að það hafi nú tekist… mig langar nú ekki beint að vera í mynd… en Simmi var tekinn í smá meðferð… lengingu og bakstra og eitthvað svona ( Lenging = Togbekkur = létta á hryggnum ef fólk er t.d. með brjósklos eða samfallna hryggjarliði ) mig hlakkar samt aðeins til þess að sjá þennann þátt… því að þetta var nú tekið upp hérna að hluta til… samt Simmi gerði sig að svolitlu fífli því að hann var settur á svona jafnvægisbretti þar sem mar á að standa á öðrum fæti og reyna að halda jafnvægi.. svo þegar jafnvægið er farið að láta sjá sig þá er bætt við að kasta bolta í vegg eða upp í loftið og svona.. frekar erfitt sko. En ég held samt að Sveppi hafi klúðrað því… held að hann hafi ekki verið að taka upp á þessum tíma… oh well… ég fékk allavegana að hlægja að því !!!