Iðunn klukkaði mig um daginn…
5 hlutir sem ég er stolt af :
Ég er stolt af því að hafa drifið mig hingað út til Danmerkur með Leifi mínum.
Ég er stolt af því hvernig pabbi tók á móti veikindum sínum síðasta sumar og hvernig hann er að vinna úr þeim í dag.
Ég er stolt af því hvernig okkur turtildúfunum gengur hérna í danaveldi.
Ég er stolt af mömmu fyrir að standa eins og klettur við hlið pabba í gegnum veikindin.
Ég er stolt af sjálfri mér fyrir að hafa hlýtt Helgu frænku fyrir tæpu ári síðan og farið til afa og verið við hlið hans þegar hann kvaddi þennan heim.
5 hlutir sem ég vil gera áður en ég dey :
Ég ætla að fara með Leifi til usa 🙂
Ég ætla að ferðast enn meira
Ég vonast eftir því að geta eignast kríli one day
Eignast húsnæði á stórReykjavíkursvæðinu
og margt annað sem ég get ekki valið á milli sem atriði nr 5 😀
5 hlutir sem ég mun aldrei gera
vonandi mun ég aldrei taka líf annars einstaklings
hætta að taka myndir
ég vona að ég eigi aldrei eftir að hætta að hafa gaman að litlu hlutunum sem gera mig að þeirri manneskju sem ég er 🙂
5 hlutir sem ég hef gert og sé eftir :
það eru auðvitað einhverjir hlutir sem maður hefur gert og séð eftir en ég hef hinsvegar engan áhuga á að setja það inn á netið 😉
5 hlutir sem ég mun pottþétt gera.
ferðast meira,
hitta fólkið mitt,
huga að áhugamálunum mínum
flytja amk 1x á árinu
elska