mikið svakalega er gaman að opna tölvupóst með “hamingjuóskir..” í subject línunni og það er EKKI ruslpóstur!!!!!
haldiði ekki að daman hafi verið að vinna FLUGMIÐA fyrir 2 á einhvern af áfangastöðum IcelandAir í Evrópu!!
stundum borgar sig að taka þátt í svona könnunardóti á netinu 🙂
Ohhhh… heppin!!! 😛
Vá, til hamingju með vinninginn skvís 🙂
Mörg þúsund þakkir fyrir pakkann, hann barst í kvöld 😀
Til hamingju – frábært. Sá á kvölina sem á völina – hehe.
Til hamingju! Má ég koma með?
Til hamingju með þetta! Hvert á svo að skella sér?
hmm það er ekki komið á hreint.. eiginlega meira komið á hreint hvert okkur mun ekki langa að fara :-$
Annars takk allir fyrir hamingjuóskirnar 🙂
ég er reyndar ekki búin að heyra meira frá þessari kerlu þó ég sé búin að svara póstinum hennar.. spurning um að hringja í hana á mánudaginn 😉