sorry…
—
Ég hélt alltaf að þetta væri staður þar sem ég hefði fulla stjórn á hvað ég sendi eða sendi ekki inn eða Leifur ef út í það er farið þar sem hann hefur jú fullan aðgang að þessu kerfi. Hélt að þetta væri staður þar sem ég gæti sent inn mínar pælingar, mínar hugrenningar og þessháttar. Ég hef alltaf sagt við aðra þegar þeir hafa talað um afskiptasemi frá fólki um þeirra skrif hvort þetta væru ekki þeirra síður.. þeirra ákvarðanir hvað færi inn og hvað ekki… Ég hef líka reynt að fara eftir þessu sjálf en eins og staðan er í dag þá finnst mér ég ekki geta staðið við þetta, ég hef heldur ekki verið sjálfri mér samkvæm.. síðustu mánuði hef ég staðið mig að því að taka út pósta, editað aðra all verulega og svo framvegis allt eftir geðþótta annarra einstaklinga.
Fyrir mér þá gengur þetta ekki upp lengur.. blekkingar gagnvart því sem ég er sjálf að segja við aðra, það er ástæða þess að ég ætla mér að taka mér frí héðan í einhvern tíma. Hver veit kannski laumar Leifur færslum hérna inn á meðan…