bara smá áður en ég hleyp út til þess að ná strætó svo ég geti hitt ma&pa á flugvellinum 🙂
Símadúddinn kom einhverntíma áðan því að þegar ég kom heim úr vinnunni þá var allt komið í lag *jeij* við erum semsagt komin í samband við umheiminn á ný 🙂 þ.e. með okkar eigin nettengingu *Haha* já og auðvitað síminn kominn í lag líka 🙂
Ég er búin að setja nokkrar myndir inn á netið 🙂 reyndar ekki af Mill Hill vettlingnum þar sem ég er ekki búin að taka mynd af honum *heh* ENN nokkrar myndir sem við tókum í nóvember og svomyndir frá Julefrokostinum sem ég fór í á föstudaginn 😉 Allavegana ef einhverjir hafa áhuga þá eru myndirnar inni í Danmerkuralbúminu 😉
Allavegana ekki vera hissa þó svo að lítið birtist hérna næstu vikuna 🙂 ætla að njóta þess að eyða tíma með mömmu og pabba 🙂
flott jólasíða hjá þér skvísa og skemmtu þér svo vel að hafa mö og pa hjá þér – bið að heilsa 🙂
Njóttu þess að leika við ma og pa! 😀