Fékk e-mail frá pabba í dag, alger snilld… þau eru að koma!!! eiga bara eftir að kaupa farmiða *hóst* og ekki nóg með það heldur niðurstöður úr nýjustu blóðprufum sýna að PSAgildið er komið vel niðurfyrir 4 þannig að þessi fjandi er að hverfa!!! langaði mest að hoppa uppúr sófanum í dag en lét mér nægja að knúsa karlinn minn með þessi gleðitíðindi 🙂
við skötuhjúin erum að fara út úr dyrunum að kíkja á þessa mynd..
glæsilegt! til lukku!
Hvað sagði ég ekki, þau mundu kíkja.
Til lukku með það og ´njóttu þess tíma með þeim í botn
Hvernig var hún? Ég get ekki beðið, en býð samt. hehe.. Ætlum nokkrar saman að horfa á 1-3 og fara svo beint á 4 ;o) það verður stuð.
Sé að þú ert búin að linka á mig svo ég linka pottþétt yfir á þig alltaf þannig …
Potter over & out
Iðunnn; takk sæta 🙂
Ásta Lóa: já það stóð lika alltaf til bara dáldið langt í það 🙂
Hafrún Ásta: myndin var fín.. reyndar nokkur smáatriði sem mér fannst vanta inn í – þurfti að útskýra nokkur atriði fyrir karlinum þar sem hann hefur ekki lesið/hlustað á bækurnar. Auðvitað linkar maður á þá sem maður les 😉 þó ég sé ekkert alltof dugleg við að kommenta 😉
frábærar fréttir með pabba þinn 🙂 en það er BANNAÐ að segja hvernig myndin var – fer á hana fljótlega með Sylvíu….
ég lofa, ekki orð 🙂