ég komst að því í gær að ég passa ekki lengur í neinar af þeim buxum sem ég kom með frá ísalandinu góða.. mér finnst það barasta ekkert sniðugt! eða jú það er sniðugt.. bara pirrandi að eiga svotil nýjar buxur upp í hillu sem maður passar ekkert í! á móti kemur að ég á 2 nýjar buxur sem passa í upp í hillu líka, en það er bara leiðinlegt að eiga bara tvennar buxur! hinsvegar á ég pils, nóg af þeim 🙂 þarf bara að fá mér fleiri þykkar sokkabuxur 🙂
5 thoughts on “hmm”
Comments are closed.
það er hægt að fá mjög góðar sokkabuxur í HM – ég skal sýna þér þær þegar ég kem til þín eftir 3 daga
hehe, ég á slíkar 😉
er einmitt í þeim as we speak 😉
þarf bara að kaupa fleiri!
vantar nánari útskýringar, eru þær of stórar eða litlar?
haha, Maggi þú þekkir greinilega ekki mikið inn á stelpur 😉
meira en þig grunar…