já það má víst segja það að frk Vísa sé búin að vera í stuði í dag…
ég veit að ég hef oft sagt að við ætluðum að kaupa okkur eitt stk fartölvu í danaveldi en við ákváðum í dag að smella okkur á eina Acer tölvu hjá Tölvulistanum.. einnig var keyptur flakkari þannig að við erum í súper málum hvað varðar geymslupláss á tölvutækuformi þessa dagana.. mig minnir að tölvan sé með 60 gíg, flakkarinn er 250 gíg, minn iPod er 30 gíg og Leifs 20 gíg.. það gerir hmmm já 360 gígabæt *jikes*
erum búin að skoða aðeins flakkarann í gegnum tölvuna.. eigum eftir að “fylla á hann” næstu daga.. LS ætlar að henda inn á hann myndum, tónlist og svona dótaríi sem hann þarf að hafa með út þá daga sem hann á eftir í fríi og svo kemur hann til mín og ég hendi inn á hann öllum mínum myndum sem teknar hafa verið síðustu árin sem og auðvitað þeirri tónlist sem ég hef verið að sanka að mér hérna inn á tölvuna.. bara gaman 😉 svo um leið og ég er búin að skila honum út á flugvöll á miðvikudaginn fer ég og næ í tölvuna okkar þar sem þeir áttu ekki uppsetta tölvu eins og við vildum á lager.. hvað um það fæ hana eftir 2 daga 🙂 get þá dundað mér við að setja upp ýmislegt eins og macromedia DreamWeaver sem og FireWorks 🙂 *jeij* gaman.. alltaf svo gaman að setja upp nýtt dót
Ég hef átt tvær Acer tölvur, eina borðtölvu og eina fartölvu .. báðar reyndust mér rosalega vel! Til hamingju með gripinn!!
takk fyrir það skvís 🙂
ég hef heyrt að Acer sé að gera gott þessa dagana og mjög margir “tölvukallar” sem mæla með þeim 🙂
Til hamingju með tölvuna skvís! Mér finnst nú samt að þið hefðuð átt að fá ykkur Macca í stíl við ipodinn 😉
heh máske..
samt mjög sátt við að kaupa ekki macca þar sem mín reynsla er ekkert spes (fyrir utan það að það var hund gamall macci 🙂 )