ég hef það einhvernvegin á tilfinningunni að hávaði sé ekki æskilegur í fjölbýli fyrir kl 10 á sunnudagsmorgnum…
endilega leiðréttið mig ef það er rangt!
ég var ekkert alltof sátt við að vakna við hamarshögg innan húss kl rétt tæplega 9 í morgun eftir 4t svefn*piff* síðustu gestirnir fóru um 4 leitið… þá áttum við eftir að klára að ganga frá og koma okkur sjálfum í bælið 🙂 segji betur frá gærkveldinu síðar 😉
það er alveg rétt hjá þér Dagný mín að hávaði er ekki æskilegur svona smemma morgunns í fjölbýli.Ég get alveg skilið að þig langi að stökkva á þann sem framdi hávaðann og láta hann vita hvað klukkan sé. En það er alltaf einhver einn í sambýlinu sem ekki kann sig og finnst allt í lagi að byrja snemma, einkumm ef hann hefur sjálfur orðið var við að partý hafi verið í húinu fram eftir nóttu þó að því hafi bara fylgt kjaftagangur.
heh, satt er það… að vísu þá vorum við bara 4 hérna frá 1 þannig að það var ekki meiri kjaftagangur en normið er hjá “fjölsk” spjalli.. sérstaklega þar sem fólk var edrú 🙂
veit reyndar alveg hver það er sem er búin að vera að hamra í dag 😉 hann er ekki fluttur inn þannig að hann hefði ekki orðið var við okkur 😉
Lögum skv. skal vera svefnfriður frá miðnætti til 9 um helgar. Amen.
*hah* kallinn var farinn að bera inn búslóðina þegar ég fór í vinnu í morgun