þetta ætti að verða skemmtileg helgi.. eða ég vona það allavegana 😉
er að telja niður mínúturnar þar til ég fer út á reykjavíkurflugvöll að sækja sætastrákinn *jeij* hlakka bara til þess að fá að hafa hann hjá mér næstu daga.. verst að ég þarf að senda hann í flug aftur á miðvikudaginn og sé hann ekkert aftur fyrr en daginn áður en við förum út!!!
á morgun erum við búin að bjóða nokkrum aðilum í smá kveðjuhóf í tilefni þess að við erum að fara *úff* þetta er farið að líða all svakalega hratt. Hlakka til að hitta fólkið.. verst að þetta er mjög líklega í síðasta skipti sem við eigum eftir að hitta sum þeirra þar til í desember. verður skrítið… EN sem betur fer er til alveg ofsalega sniðugt fyrirbæri sem heitir Internetið sem heldur okkur í stöðugu sambandi við umheiminn *jeij*
jæja ég ætla að fara að knúsa kallinn…
hlakka til að hitta fólkið á morgun.. ætla mér að taka helling af myndum eiga nóg af myndum af öllum til þess að taka með út.. (já og svo er líka hægt að skrappa úr þeim *glott*)