Jæja,
ég fór í gærkveldi að fylgjast með upptöku á Djúpulauginni hjá S1
við vorum 4 saman í salnum, Axel, ég, Ágústa og Fanney vinkona Fanneyjar (eh?) allavegana Fanney tók sig annsi vel út.. var bara reglulega sæt í gærkveldi eða á mar að segja extra sæt barsta… vá hvað það sást samt á henni hve stressuð hún var….
Strákarnir voru auðvitað alveg frá A til Ö,
NR1 leit ágætlega út.. virtist svara mjög hreinskilningslega og kom vel fyrir en samt var eitthvað við hann *æjégnenniþessuekki* eða eitthvað þannig… NR2 var sá hressasti og kom með fyndnustu svörin og svona… og að mínu mati sætastur af þeim 3… og NR3 hvað í andsk. var hann að gera þarna ?!??! eflaust ágætasti strákur en hann var svo DÖLL að það er ekki fyndið… mar heyrði ekkert sérstaklega vel í fólkinu en í honum ekki neitt…
Ég vona að Fanney skemmti sér vel í ferðinni sinni og að gæji nr 2 sé fínn strákur…