Ég er snillingur!!!! snillingur aldarinnar sem er nýgengin í garð!!!!
ég var að koma heim áðan og þar sem ég er ekki alveg orðin vön því að vera bara á framhjóladrifnum bíl (gamla settið er með 4hjóladr) og snjórinn er ekki alveg að meika það hjá hinni keyrandi Dagnýju allavegana ég var að keyra inn á innkeyrsluna hérna heima og renn aðeins til og bamm á tréstaur sem er við stæðið og neðst á þessum tréstaur er járnhólkur sem festir hann í jörðina og ég hitti beint með annað afturdekkið á járnið og það er svona V laga gat á dekkinu hjá mér 🙁 ég er svo fúl út í sjálfa mig að það er ekki einusinni fyndið. Svo þegar ég var að byjra á því að segja Aumingjann undir bílinn hjá mér þá kemur fjölsk. á móti heim og strákurinn þeirra ( 2 árum yngri en ég ) kallar “Dagný er sprungið” uhhhhhhh haldandi á tjakknum “JÁ” nágranninn ” Viltu hjálp?” uhhhhhh “JÁ TAKK”
Haffi krútt tók semsagt að sér að skipta um dekk fyrir mig 🙂 TAKK HAFFI!! hah hann er semsagt að vinna sér inn fleiri styttingar á buxum hjá mömmu (mamma er nefnilega sérlegur buxnastyttingar aðili fólksins í Austurholti) aníhow ég er semsagt að krossa fingur og vona heitt og innilega að ég geti farið á eitthvað dekkja verkstæði á morgun og keypt mér dekk eða vonað það heitt og innilega að það sé hægt að gera við þetta gat. VIVA VISA!!!!